Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Ammćli

29. febrúar 2008 klukkan 11:04
Já vil bara þakka kærlega fyrir ammælis bloggið mitt .. já takk

Annars ætla ég að halda uppá það í kvöld ;)
Hlakka til að sjá ykkur elskurnar!

En hérna tók djamm síðustu helgi ..

Ég og Hrefna fórum að rífast útaf stoppdans !
Klikka á bláa :)



hrefne edrú ..


Blá edrú :)



Hress og kát


Ein ást !
Elín

Ísland - bezt í heimi !

16. desember 2007 klukkan 22:55

Jæja stelpur mínar núna er að koma að þessu. Vildi bara skella inn einu bloggi til að minna á heimkomu mína.
Kem semsagt á Þriðjudaginn 18.des sem er eftir 2 daga !!

Ég lendi klukkan 14:30 á staðartíma í Keflavík frá Stansted svona fyrir þá sem vilja taka á móti mér með blómum, krönsum, kampavíni og viltum folum.


Sjáumst og heyrumst á Íslandi bara næst ;) :)
Home sweet home !

Eva Karen

Blogg

08. desember 2007 klukkan 17:55
Hæ elskurnar ætli ég bloggi ekki frá nafla alheimsins .. eða svo halda bæjarbúar, hérna á Seyðisfirði.
Ég ferðaðist semsgat í ískaldri flugvél flugfélags ísland til að koma mér á Egilstaði og svo frá Egilstöðum yfir í fegursta fjörð í heimi. Einn og einn bíll fastur hér og þar á leiðinni yfir fjarðarheiði:)
Síðan á fimmtudaginn, hef ég setið í tölvunni, borðað og sofið. Heimsótt Rósu vinkonu mína sem á svoooooo sætan lítil dúllu mús hund:)
Í kvöld ætla ég að breyta af vananum, þar sem að amma og afi eru að fara út að borða, í sitthvoru lagi : ) ..þá ætlum við Rósa að baka Pizzu sammen :)

Á þessu heimili er frekar rólegt.. Við erum hérna 3.. og það er rifist um hver er næstur í bubbles.. þvílíkt sældar líf :)

Annars hafið það gott í des..

Eva fer að fara koma heim .. þessi elska, sakna þín sætabrauð
Helga farðu að láta heyra í þér pjása ;)




Ella sem hefur ekkert að gera :)

Bloggedíblogg jakkedí jakk

02. desember 2007 klukkan 21:08
Sælar skvísur .. prófið að ýminda ykkur fimmtudagn SMÁMÆLTAN gaur segja þetta á höst nótum .. ;)

Ætli ég bloggi ekki aftur rúsínur

* Prófa törnin að byrja
* Sæti hérna pungsveitt að reikna..ef ég væri með pung!
* Sakna Kristínar soldið mikið hef ekki séð hana lengi!!
* Búin að vera lasin bara um helgina ekki stemmari í gangi!
* Ein okkar komin með barn undir belg ?
* Önnur situr slefandi að telja niður dagana að komast heim
* Sú þriðja er ekkert að stressa sig yfir prófunum ;) enda ekki hennar sterkasta hlið þessa stundina
* Og svo fjórða ég, sit hérna með hor í nös að þykjast vera að læra ...
* Djamm eftir próf ? JÁ !
* Spá í að halda smá teiti kanski eftir próf allir til í það :)
* Mér leiðist
* Ég hef ekkert meira að segja
* Nema kanski að ég elska ykkur svo mikið
* Og það er svo stutt í að eva komi !!

Kveðja




Ritstífla eđa hćgđastífla ?

20. nóvember 2007 klukkan 13:52

Komiði sælar kæru vinkonur og góðir og slæmir landsmenn nær og fjær.
Ég er á lífi..
Síðustu dagar mínar hafa verið tiltölulega afdrifaríkir, ekki hef ég aðeins stundað knattspyrnu af kappi heldur hef ég verið mjög afkasta mikil í vinnu..

Fokk stelpur, um daginn var ég að passa 5 mánaða gamla geðveikt sæta stelpu.. okey nóttina eftir dreymdi mig að ég ætti krakka ..og ég var alltaf að reyna passa að allir mundu ekki fatta að ég vissi ekki hver pabbinn væri ..
Mér leið ekkert smá illa yfir því og var bara eikkað what ???? Svo fattaði mamma að krakkinn væri föðurlaus og við fórum í þvílíkan leiðangur, keyptum svona lífsíni og ég ætlaði að láta alla sem ég hef verið með láta mig fá dna hahahha

CRÍPÍ !!!!!

Ég er búin að vera vinna eins og mother fokker..
Sjáflsögðu fótbotlast á fullu

Ég er búin að vera bralla helling held ég hendi inn smá myndabloggi bara ...


Ég og heiðdís hjemme..


Ég Sara og Hrefna frænka mín


Svo ein hérna úr pizzabæjar partýjinu góða .. Atli Sissi  hrefna og Reynir ..



Ég og Dóri í ammæli hja Elsu um daginn ..



Ein hérna af austfirðinga ballinu um daginn ..

Svona er nú það ..
En hey ég og Hrefna frænks ætlum að fara hafa svona stelpu kvöld heima á fimmtudögum eða miðvikudögum man ekki .. bara allar stelpur sem vilja mæta fá okkur kanski í glas, eða horfa á despó og bara spjalla ;)

En hvernig væri að fara halda sleepover hjá okkur hérna allavega þegar Eva kemur???

LOKSINS....

18. nóvember 2007 klukkan 21:11
jæja... LOKSINS kemur eitt stykki af bloggi frá Helgu Þóru sem er kennd við Harald;)

en já það er búið að vera nóg að gera hjá mér.. skólin frá 8-4 alla daga vikunnar.. þegar ég er ekki skólanum er ég að vinna og þegar ég er ekki að vinna heng ég með vinum mínum og rúnta og ekki má gleyma bjórkvöldunum & djamminu;).. þannig að nóg að gera.. 
er farin að vinna hjá Takk hreynlæti ásamt 3/4 part af fjölskyldunni;) og stefnir í svaka árshátíð 15 & 16 desember..  sjáum til hvernig það fer;)

bjórkvöld.. Elín?? Kristín?? hvar í ***** eru þið búnar að vera.. ?? mér finnst ég algjörlega skilin útundan.. til dæmis sé ég ykkur aldrei á bjórkvöldum lengur.. hvað þá virka daga:( þetta gengur ekki..

Eva er bara komin með nýja vini þarna úti... eins gott fyrir þig að þú sért ekki búin að gleyma okkur.. :* hlakka til að fá þig heim stelpa.. :D

Elín allan sólahringin týnd með Dóra eða einvherjum, ef ekki hann þá fótboltinn eða djamm

Kristín?? hmm jú vinna á mánudögum og ert þú kannski líka týnd?? með Reyni þá:/

já þetta er slúðrið sem ég er með ...

ég ætla bara að fara að týnst líka.. finn mér einhvern til að týnast með.. .
en vonandi fær maður brálega að heyra eitthvað í ykkur.... ;)


bjórkvöld næsta fimmtudag??


kv. Helga týnda? :/

KOMA SVOOOOO...!!!!!!

16. nóvember 2007 klukkan 16:06
Jæja stelpur mínar nú er ég brjáluð.. !
Ég vil eitt stikki blogg frá Elínu eða Helgu og þá helst í gær !!!!!
Koma svo með eikkað krassandi, og engar afsakanir eru teknar til greyna. Ég og Kristín erum stykkfrí því að við blogguðum nýlega.
Þetta er hótun sko, fáið 3 daga annars fariði til helvítis !
Ekkert svona já það er ekkert að gerast hjá mér og mímímí, þið skáldið þá bara eittvað eða finnið út úr þessu.
hahaha elín kemur pottþétt þá með að hún var að sofa hjá Davið Beckham eða Justin.

Kv Eva Karen bandbrjálaða ;)

Krakkar mínir komiđi sćl....

30. október 2007 klukkan 15:04
Sko ég hef aveg frá miklu að segja en hvar á ég að byrja... ?

Kristín er náttla búin að segja frá þegar ég hitti Kristínu og Reyni og fólkið niðri London og það var alveg massa stuð. Fancy hótel, Fancy út að borða, farið á skemmtilegann klúbb þar sem við dönsuðum feitann steradans haha og svo náttla verslað á Oxford. Svo endaði ferðin ömulega þar sem ég var massa þunn á Oxford búin að sofa í einhverja 2 tíma örugglega ennþá full bara.. Dragandi flugfreyjutöskuna á eftir mér eins og ég ætti lífið að leysa... Nei fattaði Eva Karen ekki þá bara að hún hafi gleymt veskinu sínu í Taxanum með öllu draslinu mínu í !!
  • Síminn mínn
  • I-podinn minn
  • Lestarmiðinn minn til baka og ég átti engann pening.
  • Veskið mitt
  • Stúdentakortið mitt sem ég hafi fengið sent frá íslandi fyrir 2 dögum
  • Eitthvað svona sjúkraskýrteni sem ég hefði líka fengið sent fyrir 2 dögum
  • Seinasti peningurinn minn
  • Lyklarnir af húsinu hérna ú UK
  • Lyklarnir af húsinu heima á Íslandi
Ég var svo fokk pirruð að ég var næstum lögðst bara niður á Oxford street og farin að grenja haha.. En nei nei ég komst heim með hjálp frá Kristínu og Reyni og allt svona reddaðist fyrir horn.
En fyrir utan þetta vesen þá var þetta fárnalega skemmtó ferð og geggjað að hitta Kristínu og Rebba !


Anyways þá eru seinastu dagar mínir og vikur búnir að vera svona... Ætla bara telja upp svona nokkra punkta því ég er alls ekki að nenna að lýsa öllu í smáatriðum.

  • Fór og ætlaði að hitta einhver hóp að öðrur Au perum
  • Endaði í fokking messu !!!
  • Kynntist stelpu frá Canada sem er að læra eitthvað shit hérna í Háskólanum. Hún heitir Emily
  • Hevý nice stelpa
  • Kynntist líka Pólskri stelpu hérna (án gríns) hún heitir Marta og er voða nice líka
  • Kynntist djömmurum í gegnum hana
  • Fór með henni og fleira fólki á svona international café á fimmtudaginn og lærði að dansa gríska dansa, verð góð í þeim þegar ég er komin í glas úfff...
  • Eftir það fórum við á smá pöbbarölt og ég endaði hauslaus hahha
  • Alveg snarbilað fólk hérna, eins og það sé í keppni sem gegnur út á það að fylla mann, komu alltaf bara með nýja og nýja drykki handa manni, held að ég hafi keypt mér einn drykk sjálf.
  • Svo á föstudeginum var náttla bara þynnka en fór samt í svona dinner með Emily hjá Háskólanum hennar, beilaði snemma heim var svo þreytt.
  • Laugardagurinn var svo massa skemmtó, hitti Mörtu og fólkið og fórum á djammið, massa stuuuð :D
  • Þannig VEI ég er búin að eignast vini :D
  • Kemur samt enginn í staðinn fyrir mína elskulegu á Klakanum.
En allavega þetta er það svona helsta sem er búið að gerast hjá mér, ég er búin að kynnast fínu fólki og farin að fara út og blanda geði.
Get samt ekki beið eftir að koma heim og hitta allt gengið mitt :D
Fjölluna, Ottó og strákana, ykkur stelpurnar og vitleysingana..
En núna eru bara 49 dagar þangað til ég kem og það veðrur awesome..


Mamma hringdi núna áðan með þær fínu fréttir að ég fæ örugglega Flórída miðann minn endurgreiddann eða fæ innleggsnótu hjá Icelandair. Fyrir þá sem ekki vita var ég búin að plana að fara til FLórida með fjöllunni þann 6.nóv í húsið okkar sem mamma og fósurpabbi minn voru að kaupa. Svo bara skellti ég mér hingað og beilaði á því. En já ef ég fæ þetta endurgreitt eða eikkað þannig þá ætlar Ottó Marinó að komaí heimsókn til mín og ég ætla að borga í fluginu fyrir hann ... Sakna kallsins og honum langar líka massa að koma hingað út og sjá London og mig náttla of course haha ;) þanig það verður geggjað ef hann kemur.

Veit ekki hvað ég á að segja mikið meira en ég ætla bara vorkenna ykkur þar sem þið þurfið að skafa af bílonum ykkar á morgnanna og klæðast rosa þykkum fatnaði til að frjósa ekki í hel þegar þið farið útum húsins dyr þarna heima.. Hérna er farið að kólna en ég get samt alveg ennþá verið á peysunni á daginn. Er stundum frost á nóttinni. En á kvöldin og morgnanna er svoldið kalt.

OG HEY ég fékk líka að vita í gær að taskan sem ég týndi í London er fundin !!! :D Guð sé lof ég er alveg mega fegin yfir því sko !!
Samt smá vesen að ná í hana því :
  • Ég þarf að fara alla leið niðri London að ná í hana.
  • Ég get bara sótt hana milli 8:30 og 16:00 á virkum dögum.
  • Og ég er ALLTAF að vinna hérna á þeim tímum
  • Ég þarf að borga til að fá töskuna mína til baka
  • Þarf að lýsa öllu sem var í henni mjög vel
  • Þarf að mæta með vegabréfið mitt til að sýna að þetta sé ég.
  • Og ef einhver annar ætlar að ná í hana en ég þá þarf ég að skrifa formlegt bréf um að sú persóna megi ná í þetta og hún þarf að fara með vegabréfið sitt og eikkað svaka vesen..
Þannig þetta er smá vesen en þetta reeeeeddast.. Líður bara eins og ég sé að fara leysa út sprengju eða eikkað því þetta er svo mikið ferli eikkað..

En núna hef ég bara mjög lítið meira að segja.. er allavega búin að láta heyra í mér. Ég heimta að einhver ykkar stelpnanna yfirbloggi mig bara fljótlega, Helst Helga eða Elín því Kristín bloggaði seinast og núna er ég búin að blogga og þá er ég laus við það næstu mánuðina hahha ;)

En verðið nú góð við hvort annað og muniði að öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir og það er ljótt að plata.. Hahah ;)

Sakna ykkar allra voða mikið og hlakka til að sjá ykkur um jólin.. eru þið búin að kaupa jólagjöf handa mér?? Ef ekki þá þurfiði alvarlega að fara hugsa úti hvað þið ætlið að gefa mér :D
Vil stórann pakka!!

see you later aligater
in a while crokódæl !

Eve....
(er kölluð það hér af sumum sem eru bæklaðir í kjaftinum og geta ekki sagt Eva)

London!!;D

19. október 2007 klukkan 19:14
Jæja þessi síða virðist bara vera dáin, stelpur fariði nú að drífa ykkur í að blogga Eva Karen það er komið að þér!;) En ég ætla að gera litla og stutta færslu um Lundúna ferðina mín og Reynis á árshátíð G&G!

Ok við flugum út 11.okt og vorum komin inna á hótel eitthvað um 10 leytið (vill bara deila því með ykkur að þetta er flottasta hótel sem ég hef á æfi minni séð, geggjað!!) En allavega þá fórum við bara og hentum úr töskunum og fórum niður á bar(Geðveikt flottur!! haha) hittum allt fólkið svo þaðan fórum við Reynir, Dagný, Begga, Hilmar, Pétur og Artur niður á Piccadilly Sirkus og fórum á stað sem heitir Tiger Tiger(Sólon 2) ágætis staður svo sem og vorum þar það sem eftir var af kvöldinu..!;D

Dagin eftir vöknuðum við snemma eins og alltaf reyndar og fórum niðrá Oxford Street þar vorum við alla dagana!;D En já við náðum að versla alveg slatta þann dag!;P Svo kom Eva sæta með lest niður á Oxford og við tókum síðan taxa upp á hótel og fórum í sturtu og svona!;P Síðan eftir þar fórum við niður á barinn og vorum þar þangað til við fórum öll(unga fólkið) upp á herbergi til mín/okkar!;D Sumir fengu sér aðeins of mikið í af Vodka í Red Bull!;P Haha það var samt bara fyndið Reynir minn þú ert ágætur!;*

 


Eftir mikla ölvun kvöldið áður byrjaði laugardagurinn hægt, Eva og Reynir alveg að drepast úr þynnku greyjin þannig við löbbuðum bara frá 11-5!:( En við fórum á Oxford og í Covent Garden, það er ofboðslega sætur staður!;) Svo um 5 leytið fórum við upp á hótel og gerðum okkur til fyrir árshátíðarmatinn á flottasta og besta veitingastað í heimi ég sver!;D Var kosinn besti veitingastaðurinn í London 2006! Skoðiði myndirnar af staðnum á síðunni en vá ég er alveg að missa mig!

http://www.gauchorestaurants.co.uk/restaurants/restaurant.php?id=piccadilly

Maturinn var ógeðslega góður þarna ég fékk mér fiskiblöndu í forrétt, af einhverjum ástæðum bjóst ég við að þetta væri eldaður fiskur en neinei ég fékk hráan kolkrabba í forrétt, ég vissi það ekki fyrr en ég var búin að fá mér nokkra þá spurði ég svarið " raw octopus" Hann var samt ágætur..

 

í aðalrétt fékk ég mér steikina, án efa ein besta steik sem ég hef smakkað allavega!;D Og loks í eftirrétt fékk ég mér súkkulaði köku og það eru ekki til orð til að lýsa því hversu góð hún var! haha vá ok ég fer að hætta þessu!;) En já ég gleymdi að segja frá því að það var svona setningaleikur í gangi á meðan maturinn var, það biðu setningar undir diskunum hjá öllum og það þurftu allir að segja setninguna eins og oft of mögulega hægt var, ég vissi auðvitað af leiknum og hélt að ég mundi allar setningarnar en nei svo var ekki ég fattaði ekki neitt þegar Eva var alltaf að tala um það hvað það væru falleg gólf efni þarna eða þegar ég Pétur var alltaf að kalla Bingó! hehe mjög skondið!;) Svo var einn annar leikur Safnarinn 2007, hann var svoleiðis að fengnir voru 4 konur/stelpur og ég og Eva vorum 2 af þeim þú þurftir að safna 4 hlutum og þá væriru búin að vinna! *Bindi*Klósettpappír af karlaklósettinu*Sokk frá karlmanni*Vindil frá pabba.. Haha þetta var heavý fyndið inna á þvílíkt fínum veitingastað og ég lá á gólfinu að reyna að ná Reyni úr skónum!;)Eva varð svo víst krýndur sigurvegari:O

 
ég að rífa bindið af pabba og taka vindlana hans..;D

 
Sólheimabarn 2007.... neineineinei Safnarinn 2007!:D Sætust;*

En já svo fórum við öll saman unga fólkið á geðveikan underground klúbb sem heitir Fabric geðveikur klúbbur á -4 eða -5 hæð það var geðveikt..!;) En vegna þess að Reynir þjáðist af þynnku þá þurftum við að fara upp á hótel! Vá hvað ég var fúl en ég er búin að jafna mig núna!;)

Svo þurftum við að fara út af herberginu klukkan 12 og tékka okkur út..!;) Þaðan fórum við niður á Oxford í Taxa, Evu langaði svo í eitthvað feitt þannig við fórum á McDonals, þegar við vorum komin þangað inn fattar allt í einu Eva að hún hafi gleymt veskinu í taxanum!:(:( En það reddaðist eins vel og hægt var við lánuðum henni fyrir lestarmiða heim þannig hún komst allavega heim til sín!;);* Svo fórum við Reynir aðeins að rölta Oxford og kíktum aðeins í Covent Garden og svo var bara flogið heim ég klakan..!:( ( úr 18 stiga hita og sól í -2 gráður)

En þetta var stutta útgáfan ég er búin að reyna að stytta þetta eins og ég get!;) London er frábær borg og þangað fer ég alveg pottþétt aftur!:) Í einu orði var þetta alveg geðveiktógeðslegaskemmtilegasta helgi í LANGAN tíma!;D Takk Reynir og Eva mín og auðvitað allir hinir sem komu að henni!;*;*

Ætla að enda þetta á nokkrum myndum!;D

 
Dagný á Oxford!;D

 
Reynir og Hilmar!;D hahaha;*

 
Eva og Reynir á Oxford, ógðslega þunn!;D

 
Eva og ég!;D

 
Begga og Pétur!;*

En já þá er komið nóg í bili!;) Restin af myndinum er á www.myspace.com/kristinvalgeirs

Elskiði friðinn, strjúkiði kviðinn!;)
-Stæn fæn!;D

Obbossí..!;D

05. október 2007 klukkan 22:44
Jæja krakkar mínir nú kemur að því sem allir hafa verið að bíða eftir!!:D Haha ég ætla að reyna að koma með eitt stykki blogg!Hlæjandi
Ég ætla að byrja á því að segja ykkur að í dag þá fundum við Elín rúm handa mér haha! ég er búin að vera að leita að rúmi í svona mánuð, mig sárvantar nýtt rúm, ég sef alltaf svo illa ég næ aldrei að sofna...!Fýldur





 Það gæti stafað af nokkrum ástæðum að ég sé með ónýtt bak eftir fullan ljótan kall, lélegt rúm, eða þá að það sé of lítið(sumir eiga það til að sofa í fósturstellingunni),eða þá að minn elskulegi kærasti tali svo mikið upp úr svefni að ég geti ekki sofið, hann er alltaf svo busy við að gera við bíla!
qoute:ég þarf að smyrja þenna og þá er hann reddý,(pínu stund líður) ÚT MEÐ DRUSLUNA!!!
Eða þá að hundurinn minn hrjóti svo hátt.. Reynir bætist svo inn í og þá er komin svona skemmtileg sinfónía!Hlæjandi
Elska ykkur samt mest!Koss Hér að neðan eru nokkur tip fyrir þá sem sofa illa:


  • Svefnþörf: Ungabörn og smábörn, 12-18 tíma; forskólabörn 10-12 tíma; skólabörn um 10 tíma; ungmenni 8-10 tíma; fullorðnir 6-8 tíma. Lengd svefnsins skiptir samt sem áður ekki öllu máli heldur gæðin.
  • Svefnleysi og of lítill eða óreglulegur svefn hefur slæm áhrif á andlega og líkamlega heilsu. Einstaklingur sem hefur ekki fengið fullnægjandi svefn hugsar t.d. ekki skýrt.
  • Gott rúm bætir svefninn og í svefnherberginu ætti að vera hæfilegur hiti og kyrrð. Ef maður hefur ekki fengið nægan svefn getur stuttur lúr að degi til (um 20 mínútur) hjálpað mikið.
  • All flestir vita að nægur svefn og hvíld er undirstaða góðrar heilsu. En undirstaða góðrar heilsu er einnig að búa við andlegt og líkamlegt jafnvægi.
  • Reglulegur fótaferðartími styrkir líkamsklukkuna og leiðir að lokum til reglulegs svefntíma.
  • Dagleg reglubundin hreyfing leiðir til dýpri og/eða betri svefns en óregluleg líkamsrækt rétt fyrir svefn getur gert ógagn.
  • Hungur truflar svefn og sama gildir um að vera of saddur. Lítill náttverður nokkru fyrir svefn getur hjálpað sumum.
  • Forðast á örvandi drykki að kveldi, sérstaklega með koffíni, s.s. kaffi, gosdrykki og suma orkudrykki.
  • Áfengi getur hjálpað spenntum einstaklingi að sofna en það truflar svefninn og sama gildir um tóbak.
  • Tryggja þarf ró í umhverfi og huga áður en lagst er til svefns. Forðastu að taka áhyggjur með í rúmið.
  • Dempuð lýsing nokkrum klukkustundum fyrir svefn virkar vel.
  • Heitur drykkur svo sem flóuð mjólk eða heitt bað hjálpar líka mörgum.
  • Ekki liggja andvaka í rúminu, farðu fram á smástund og gerðu eitthvað allt annað og reyndu svo aftur að sofna.
  • Slökun er andstaða streitu.

Að öðru máli ég er að fara til London eftir 6 daga, London baby yeah! að hitta Evuna mína!!!Hlæjandi



Lundúnarferðin mun einkennast af:



Drykkju!Hlæjandi


og verslunarleiðöngrumSvalur

En jæja mér finnst þetta bara vera komið gott í bili, ég hef bara aldrei bloggað áður nema einhvern tíman fyrirl löngu löngu síðan.... hér er slóðin að þeirri síðu... fjúkk sem betur fer var ég svo heppin að ég komst aldrei á gelgjuskeiðið...Hlæjandi hehemmm... www.folk.is/_kristin
 

Stæn fine!Hlæjandi

Myndasíđur

Auglýsing

Innskráningar kubbur