Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Krakkar mínir komiđi sćl....

30. október 2007 klukkan 15:04
Sko ég hef aveg frá miklu að segja en hvar á ég að byrja... ?

Kristín er náttla búin að segja frá þegar ég hitti Kristínu og Reyni og fólkið niðri London og það var alveg massa stuð. Fancy hótel, Fancy út að borða, farið á skemmtilegann klúbb þar sem við dönsuðum feitann steradans haha og svo náttla verslað á Oxford. Svo endaði ferðin ömulega þar sem ég var massa þunn á Oxford búin að sofa í einhverja 2 tíma örugglega ennþá full bara.. Dragandi flugfreyjutöskuna á eftir mér eins og ég ætti lífið að leysa... Nei fattaði Eva Karen ekki þá bara að hún hafi gleymt veskinu sínu í Taxanum með öllu draslinu mínu í !!
  • Síminn mínn
  • I-podinn minn
  • Lestarmiðinn minn til baka og ég átti engann pening.
  • Veskið mitt
  • Stúdentakortið mitt sem ég hafi fengið sent frá íslandi fyrir 2 dögum
  • Eitthvað svona sjúkraskýrteni sem ég hefði líka fengið sent fyrir 2 dögum
  • Seinasti peningurinn minn
  • Lyklarnir af húsinu hérna ú UK
  • Lyklarnir af húsinu heima á Íslandi
Ég var svo fokk pirruð að ég var næstum lögðst bara niður á Oxford street og farin að grenja haha.. En nei nei ég komst heim með hjálp frá Kristínu og Reyni og allt svona reddaðist fyrir horn.
En fyrir utan þetta vesen þá var þetta fárnalega skemmtó ferð og geggjað að hitta Kristínu og Rebba !


Anyways þá eru seinastu dagar mínir og vikur búnir að vera svona... Ætla bara telja upp svona nokkra punkta því ég er alls ekki að nenna að lýsa öllu í smáatriðum.

  • Fór og ætlaði að hitta einhver hóp að öðrur Au perum
  • Endaði í fokking messu !!!
  • Kynntist stelpu frá Canada sem er að læra eitthvað shit hérna í Háskólanum. Hún heitir Emily
  • Hevý nice stelpa
  • Kynntist líka Pólskri stelpu hérna (án gríns) hún heitir Marta og er voða nice líka
  • Kynntist djömmurum í gegnum hana
  • Fór með henni og fleira fólki á svona international café á fimmtudaginn og lærði að dansa gríska dansa, verð góð í þeim þegar ég er komin í glas úfff...
  • Eftir það fórum við á smá pöbbarölt og ég endaði hauslaus hahha
  • Alveg snarbilað fólk hérna, eins og það sé í keppni sem gegnur út á það að fylla mann, komu alltaf bara með nýja og nýja drykki handa manni, held að ég hafi keypt mér einn drykk sjálf.
  • Svo á föstudeginum var náttla bara þynnka en fór samt í svona dinner með Emily hjá Háskólanum hennar, beilaði snemma heim var svo þreytt.
  • Laugardagurinn var svo massa skemmtó, hitti Mörtu og fólkið og fórum á djammið, massa stuuuð :D
  • Þannig VEI ég er búin að eignast vini :D
  • Kemur samt enginn í staðinn fyrir mína elskulegu á Klakanum.
En allavega þetta er það svona helsta sem er búið að gerast hjá mér, ég er búin að kynnast fínu fólki og farin að fara út og blanda geði.
Get samt ekki beið eftir að koma heim og hitta allt gengið mitt :D
Fjölluna, Ottó og strákana, ykkur stelpurnar og vitleysingana..
En núna eru bara 49 dagar þangað til ég kem og það veðrur awesome..


Mamma hringdi núna áðan með þær fínu fréttir að ég fæ örugglega Flórída miðann minn endurgreiddann eða fæ innleggsnótu hjá Icelandair. Fyrir þá sem ekki vita var ég búin að plana að fara til FLórida með fjöllunni þann 6.nóv í húsið okkar sem mamma og fósurpabbi minn voru að kaupa. Svo bara skellti ég mér hingað og beilaði á því. En já ef ég fæ þetta endurgreitt eða eikkað þannig þá ætlar Ottó Marinó að komaí heimsókn til mín og ég ætla að borga í fluginu fyrir hann ... Sakna kallsins og honum langar líka massa að koma hingað út og sjá London og mig náttla of course haha ;) þanig það verður geggjað ef hann kemur.

Veit ekki hvað ég á að segja mikið meira en ég ætla bara vorkenna ykkur þar sem þið þurfið að skafa af bílonum ykkar á morgnanna og klæðast rosa þykkum fatnaði til að frjósa ekki í hel þegar þið farið útum húsins dyr þarna heima.. Hérna er farið að kólna en ég get samt alveg ennþá verið á peysunni á daginn. Er stundum frost á nóttinni. En á kvöldin og morgnanna er svoldið kalt.

OG HEY ég fékk líka að vita í gær að taskan sem ég týndi í London er fundin !!! :D Guð sé lof ég er alveg mega fegin yfir því sko !!
Samt smá vesen að ná í hana því :
  • Ég þarf að fara alla leið niðri London að ná í hana.
  • Ég get bara sótt hana milli 8:30 og 16:00 á virkum dögum.
  • Og ég er ALLTAF að vinna hérna á þeim tímum
  • Ég þarf að borga til að fá töskuna mína til baka
  • Þarf að lýsa öllu sem var í henni mjög vel
  • Þarf að mæta með vegabréfið mitt til að sýna að þetta sé ég.
  • Og ef einhver annar ætlar að ná í hana en ég þá þarf ég að skrifa formlegt bréf um að sú persóna megi ná í þetta og hún þarf að fara með vegabréfið sitt og eikkað svaka vesen..
Þannig þetta er smá vesen en þetta reeeeeddast.. Líður bara eins og ég sé að fara leysa út sprengju eða eikkað því þetta er svo mikið ferli eikkað..

En núna hef ég bara mjög lítið meira að segja.. er allavega búin að láta heyra í mér. Ég heimta að einhver ykkar stelpnanna yfirbloggi mig bara fljótlega, Helst Helga eða Elín því Kristín bloggaði seinast og núna er ég búin að blogga og þá er ég laus við það næstu mánuðina hahha ;)

En verðið nú góð við hvort annað og muniði að öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir og það er ljótt að plata.. Hahah ;)

Sakna ykkar allra voða mikið og hlakka til að sjá ykkur um jólin.. eru þið búin að kaupa jólagjöf handa mér?? Ef ekki þá þurfiði alvarlega að fara hugsa úti hvað þið ætlið að gefa mér :D
Vil stórann pakka!!

see you later aligater
in a while crokódæl !

Eve....
(er kölluð það hér af sumum sem eru bæklaðir í kjaftinum og geta ekki sagt Eva)
 
Helga Ţóra
vá hvað ég er glöð fyrir þína hönd að vera búin að kynnast einhverju fólki:) það er líka komin tími til;) verður ekki lengur ein:) púff.. mikil léttir haha:D
en já ég blogga þegar það hefur eitthvað gerst fyrir tilgangslausa líf mitt.. það er svo hrikalega lítið búið að gerast hjá mér.. :/
en þú færð stórt "KLAPP" hjá mér fyrir þetta dýrlega blogg;*
#1
30. október 2007 klukkan 15:23
 
Kristin:D
Haha geggjað blogg ástin mín!;D haha vá hvað það er geggjað að þú sért loksins búin að eignast vini sæta mín er ánægð með þig...!;* Elska þig;*
#2
31. október 2007 klukkan 14:41
 
eva karen Thorisdóttir
jámm fínt að vera búin að kynnast fólki.. fannst líka bara fínt að vera þarna smá ein fyrst :P Var samt komið gott bara
#3
31. október 2007 klukkan 15:41
 
Elín Pálmadóttir
Sælar, flott blogg djöfull er ég sátt með þig krakkarassgat ;)

En já úff það er komin 1 nóvember ohhh myyyy Loooord !

Hvað með að við stelpurnar skellum okkur út eftir áramót :)
#4
01. nóvember 2007 klukkan 14:19
 
eva karen Thorisdóttir
OHHHHHHHHHH það væri GEGGJAÐ !!!! Þið verðið þá að koma með Visa-kort handa mér í leiðinni... :D Djöfull myndi ég fýla að fá ykkur hingað
#5
02. nóvember 2007 klukkan 17:12
 
Kristín ;D
Jæja Helgz á ekkert að blogga!;D Það er komið að þér!:D
#6
07. nóvember 2007 klukkan 09:04

Skrifa athugasemd

Myndasíđur

Auglýsing

Innskráningar kubbur